Rækjur með rauðrófusalati.

Uppskrift
Hráefni
300 g íslenskar rækjur
1 stór rauðrófa
4 msk chiliolía
4 msk kirsuberjaedik
4 msk basilolía
5 stilkar steinselja - fínt söxuð
1 sítróna - safinn
Salt
Leiðbeiningar
1
Hitið ofninn í 170° C.
2
Skerið 2/3 af rauðrófunni í grófa bita, marínerið með chiliolíu, kirsuberjaediki og kryddið með salti.
3
Bakið í ofninum í 30 mínútur, eða þar til rauðrófubitarnir eru mjúkir í gegn.
4
Skerið afganginn af rauðrófunni í þunna strimla og marínerið á sama hátt og bitana en eldið ekki.
5
Kryddið rækjurnar með basilolíu, sítrónusafa, steinselju og ögn af salti.
6
Berið fram kalt.
MatreiðslaFiskréttir, Forréttir, Sjávarréttir, SmáréttirTegundÍslenskt
Hráefni
300 g íslenskar rækjur
1 stór rauðrófa
4 msk chiliolía
4 msk kirsuberjaedik
4 msk basilolía
5 stilkar steinselja - fínt söxuð
1 sítróna - safinn
Salt