Print Options:








Quesadilla með edamame- og pinto baunum

Magn1 skammtur

Sumarlegur réttur sem ég mæli með að þið prófið.

 6 stk Mission tortillur með grillrönd (1 pkn)
 6 msk Philadelphia rjómaostur
 1 dl blaðlaukur, smátt skorinn
 350-400 g edamame baunir
 400 g pinto baunir
 Ólífuolía
 3 lúkur spínat
 4 dl rifinn cheddar ostur
 Chili flögur
 Cayenne pipar
 Cumin
 Sýrður rjómi
 Ferskur kóríander
Guacamole
 3 avókadó
 2 msk ferskur kóríander
 Safi úr ½ lime
 Salt & pipar
 Chili flögur
 2 tómatar, smátt skornir
 1 msk rauðlaukur, smátt skorinn
1

Steikið edamame- og pinto baunir upp úr olífuolíu í 6-8 mínútur. Kryddið þær með cumin, cayenne pipar, salti og pipar.

2

Smyrjið þrjár tortillur með rjómaosti og dreifið smátt skornum blaðlauk yfir þær.

3

Því næst dreifið edamame- og pinto baununum yfir og svo spínati.

4

Stráið rifnum cheddar osti yfir en takið frá 1 dl af ostinum. Kryddið með chili flögum eftir smekk og lokið tortillunum.

5

Penslið ólífuolíu á lokuðu tortillurnar og dreifið restinni af cheddar ostinum yfir þær.

6

Bakið í 8-10 mínútur við 190°C eða þar til þær eru orðnar stökkar og osturinn bráðnaður.

7

Á meðan quesadilla er að bakast þá gerið þið guacamole. Blandið saman avókadó, ferskum kóríander, safa úr lime, chili flögum, salti og pipar með töfrasprota eða stappið vel saman. Því næst blandið þið tómötum og rauðlauk saman við með skeið.

8

Berið réttinn fram með guacamole, sýrðum rjóma og ferskum kóríander.

Nutrition Facts

Serving Size 3-4