fbpx

Pítur með shawarma kjúklingabaunafyllingu og heimagerðri hvítlauksssósu

Ég er reglulega með kjötlausan kvöldmat sem er nú ekkert fréttnæmt í sjálfu sér en ég veit hins vegar fátt betra en þegar hann er einfaldur og fljótlegur líka. Kjúklingabaunir í dós eru í miklu uppáhaldi vegna þess að þær bjóða upp á endalausa möguleika. Hvort sem það er hummus, pottréttir, fyllingar í vefjur og pítur, ristaðar ofan á salat eða sem snakk og jafnvel sem uppistaða í köku þá eru þær bara bestar. Þessar pítur eru brjálæðislega einfaldar, bragðgóðar og fljótlegar. Shawarma krydd fæst í flestum verslunum en það er líka hægt að gera sína eigin blöndu ef vill. Svo er vissulega hægt að nota hvaða sósu sem er en þessi tiltekna hvítlaukssósa er í miklu uppáhaldi líka og á hana oft til í loftþéttu boxi í kælinum.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Pítur
 1 stk dós lífrænar kjúklingabaunir frá Rapunzel
 1 msk olía
 ½ stk rauðlaukur, skorinn smátt (hinn helmingurinn notaður síðar)
 1 stk hvítlauksrif, pressað
 1 msk shawarma krydd
 2 msk söxuð fersk steinselja
 15 cm. bútur af gúrku, skorinn í smáa bita
 3 stk tómatar, skornir í bita
 ½ stk rauðlaukur (hinn helmingurinn) skorinn í þunnar sneiðar
 4 pítubrauð
 Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
Heimagerð hvítlaukssósa
 4 msk majónes
 3 msk grísk jógúrt
 2 tsk sítrónusafi
 1 msk tahini
 2 stk hvítlauksrif, pressuð
 1 tsk hunang
 1 tsk oregano
 ½ tsk dill
 2 tsk steinselja, þurrkuð

Leiðbeiningar

Pítur
1

Byrjið á því að gera hvítlaukssósuna og setjið hana í kæli á meðan rest er græjuð.
Saxið rauðlaukinn og setjið olíu á pönnu, steikið rauðlaukinn við meðalhita, varist að brenna hann.

2

Látið vatnið renna af baununum og bætið þeim út á pönnuna ásamt mörðum hvítlauknum.
Kryddið með shawarma kryddi og salti og pipar. Bætið við kryddi ef ykkur finnst þess þurfa.
Steikið baunirnar þar til þær eru heitar í gegn og farnar að brúnast aðeins.

3

Saxið grænmetið og hitið pítubrauðin. Þegar baunirnar eru tilbúnar, setjið þær í skál ásamt gúrku, tómötum, rauðlauk og ferskri steinselju.
Skerið brauðin í tvennt og fyllið þær með kjúklingabaunafyllingunni, berið fram með hvítlaukssósunni.

Heimagerð hvítlaukssósa
4

Setjið majónes og jógúrt í skál og hrærið saman.
Bætið restinni af innihaldsefnunum út í hrærið.

5

Best er að sósan fái að taka sig í kæli í allavega 30 mín. áður en hún er borin fram.

Uppskrift eftir Völlu Gröndal

Matreiðsla, , MatargerðMerking

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir