Print Options:

Kjúklingabringur í rjómaostapestó sósu

Magn1 skammtur

Einfaldur kjúklingaréttur með dásamlegri rjómaostapestó sósu

 4 stk kjúklingabringur (Rose Poultry)
 200 g Philadelphia rjómaostur
 Matreiðslurjómi
 170 g Filippo Berio sólþurrkað tómatpestó e.Sundried Tomato Pesto
 2 stk sætar kartöflur
 1 stk rauðlaukur
 1 stk askja af kirsuberjatómötum
 2 msk Filippo Berio ólífuolía
 Salt og pipar
1

Hitið ofninn í 180 gráður.

2

Afhýðið sætar kartöflur og rauðlauk, skerið sætu kartöflurnar smátt og rauðlaukinn í strimla.

3

Hellið ólífuolíunni í eldfast mót ásamt grænmetinu og kryddið með salti og pipar.

4

Setjið grænmetið inn í ofn í 15-20 min

5

Kryddið kjúklingabringurnar með salt og pipar og leggið ofan á grænmetið. Og setjið inn í ofn

6

Eldið við 180 gráður í ca 40-50 min (þar til að bringurnar eru fulleldaðar)

Pestó rjómasosa
7

Hrærið saman í potti rjómaostinum, pestó og smá rjóma

8

Leyfið þessu að malla við vægan hita,

9

Þið stjórnið þykktinni á sósunni með rjómanum, kryddið eftir smekk. (Fyrir meira bragð er hægt að bæta við örlítið af kimchi eða sriracha sósu)

10

Gott að bera fram með hrísgrjónum og fersku salati

Nutrition Facts

0 fyrir hvað marga, hvað mörg stykki

Serving size