Hér er á ferðinni extra djúsí og góður pastaréttur sem sló í gegn hjá allri fjölskyldunni!

Uppskrift
Hráefni
400 g De Cecco penne pasta
50 g Smjör
250 g sveppir
250 g beikon
3 stk hvítlauksgeirar
400 ml rjómi
100 g rjómaostur
1 stk lúka af parmesan osti (rifinn)
½ stk sítróna
1 msk soya sósa
salt og pipar
klettasalat
pekanhnetur saxaðar
Leiðbeiningar
1
Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka og eldið beikonið þar til það er stökkt.
2
Skerið sveppina niður og steikið upp úr smjörinu, kryddið eftir smekk.
3
Rífið hvítlauksgeirana niður þegar sveppirnir hafa mýkst og steikið með þeim stutta stund.
4
Hellið nú rjómanum og rjómaostinum saman við ásamt parmesan osti og blandið öllu saman í sósu.
5
Bætið soyasósu og sítrónusafa við í lokin og meira kryddi ef þurfa þykir.
6
Hrærið soðnu pastanu saman við rjómasósuna ásamt söxuðu beikoni og toppið með klettasalati og söxuðum pekanhnetum, einnig parmesan osti sé þess óskað.
Hráefni
400 g De Cecco penne pasta
50 g Smjör
250 g sveppir
250 g beikon
3 stk hvítlauksgeirar
400 ml rjómi
100 g rjómaostur
1 stk lúka af parmesan osti (rifinn)
½ stk sítróna
1 msk soya sósa
salt og pipar
klettasalat
pekanhnetur saxaðar