Parmesanhjúpuð langa

Sælkerahjúpur úr majónesi og parmesanosti sem passar með öllum hvítum fisk. Einfalt og gott!

Fiskur
 1,50 kg langaeða annar hvítur fiskur
Hjúpur
 480 ml Heinz majónes
 150 g Parmareggio Parmesanosturrifinn
 4 stk hvítlauksrifrifin
 2 dl Panko brauðrasp
 30 g fersk steinselja
 0,50 stk sítrónasafinn
 salt og pipareftir smekk
Meðlæti
 Ferskt salat
 Kartöflur
 Filippo Berio hvítlauksolía
 Parmareggio Parmesanostureftir smekk
 Sítróna
 Purato Pinot GrigioHvítvín sem passar vel með

1

Skerið lönguna í jafna bita og kryddið með salti og pipar báðum megin.

2

Sjóðið kartöflurnar þar til þær eru nánast tilbúnar og takið til hliðar.

3

Blandið saman í skál majónesi, parmesanosti, hvítlauk, steinselju, sítrónusafa, salti og pipar eftir smekk og að lokum raspi.

4

Setjið lönguna í eldfast mót eða á ofnplötu.

5

Smyrjið vel af blöndunni á hvern bita og kryddið með salti og pipar.

6

Bakið í ofni við 180°C í ca 12-15 mínútur.

7

Steikið kartöflurnar upp úr smjöri á pönnu í 3-5 mínútur til að fá smá lit og hjúp á þær á meðan fiskurinn er í ofninum.

8

Bætið að lokum hvítlauksolíu á pönnuna með kartöflunum ásamt salti og pipar og steikið í 1 mínútu.

9

Kreistið sítrónu yfir, bætið rifnum parmesanosti við og berið fram.

10

Gott er að njóta með köldu Purato Pinot Grigio.