Print Options:








Pad Thai með risarækjum

Magn2 skammtar

Hér er uppskrift að Pad Thai eins og innfæddir gera.

 3 msk olía
 0,50 stk laukur
 3 hvítlauksrif, söxuð smátt
 1 pakki risarækjur frá Sælkerafiski
 2 egg
 1 bolli baunaspírur
 límónur
 0,25 bolli salthnetur
 vorlaukur
Sósa
 1,50 msk tamarind mauk (eða tómatsósa)
 3 msk púðursykur
 2 msk Blue Dragon fiskisósa (fish sauce)
 1,50 msk Blue Dragon ostrusósa
Núðlur og krydd
 125 g hrísgrjónanúðlur
 chilíflögur
1

Sjóðið núðlur skv. leiðbeiningu á pakkningu. Takið úr potti og setjið í sigti. Kælið með köldu vatni.

2

Blandið hráefnum fyrir sósuna saman í skál.

3

Hitið olíu á pönnu og steikið lauk og hvítlauk í 30 sek.

4

Bætið risarækjum út á pönnuna og steikið í um 1 mínútur.

5

Ýtið öllu af pönnunni til hliðar og látið eggin út á pönnuna. Hrærið stöðugt í þeim meðan þau eldast.

6

Blandið þá öllu á pönnunni saman og bætið baunaspírum, núðlum og sósu.

7

Blandið vel saman 1 mínútu.

8

Látið vorlauk og helming af smátt söxuðum salthnetum saman við allt. Veltið öllu saman og takið af hitanum.

9

Látið á disk og stráið salthnetum yfir og berið fram með límónusneiðum.

Nutrition Facts

Fyrir hvað marga, hvað mörg stykki 2