Ostakaka með Oreo kexkökum

Frábær lagskipt ostakaka með Oreo kexkökum.

 1 pakki Royal vanillubúðingur
 1 bolli mjólk
 1 tsk vanilludropar
 1 peli rjómi (2,5 dl.)
 200 g rjómaostur Philadelphia
 1 bolli flórsykur
 24 oreo kexkökur (ég notaði 32, sem eru 2 kassar)

1

Þeytið saman búðingsduftið, mjólkina og vanilludropana og setjið í ískáp í 5 mínútur.

2

Hrærið saman flórsykri og rjómaosti í annari skál.

3

Þeytið rjómann.

4

Blandið þessu öllu saman í eina skál.

5

Myljið oreokexið (í matvinnsluvél eða með frjálsri aðferð!).

6

Setjið til skiptist í skál oreokex og ostakökublönduna, endið á kexinu. Geymið í frysti og takið út 1,5 klst. áður en kakan er borin fram.