Print Options:








Ostakaka frá himnum

Magn1 skammtur

Ostakaka send beint frá himnum, þessi er algjör veisla!

Botn
 90 g smjör
 20 stk OREO kex
Ostakaka
 900 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita
 260 g flórsykur
 4 stk gelatínblöð (og 70 ml vatn)
 Fræ úr einni vanillustöng
 200 g Milka-Oreo Sandwich súkkulaði
 300 ml rjómi
Súkkulaðihjúpur
 100 g saxað suðusúkkulaði
 60 ml rjómi
Botn
1

Bræðið smjörið og myljið kexið í matvinnsluvél/blandara.

2

Hrærið smjörinu og kexmylsnunni saman þar til vel blandað.

3

Klæðið botninn á springformi (um 18 cm í þvermál) með bökunarpappír og spreyið það allt að innan með matarolíuspreyi.

4

Hellið Oreoblöndunni í botninn, þrýstið jafnt yfir botninn og aðeins upp á kantana, setjið í kæli á meðan ostakakan er útbúin.

Ostakaka
5

Leggið gelatínblöðin í bleyti í kalt vatn í nokkrar mínútur. Hitið á meðan 70 ml af vatni og vindið þá gelatínblöðin upp úr kalda vatninu, eitt í einu og hrærið saman við sjóðandi vatnið þar til þau leysast alveg upp.

6

Hellið gelatínblöndunni í skál til þess hún nái stofuhita á meðan annað er útbúið.

7

Þeytið 300 ml af rjóma og leggið til hliðar.

8

Saxið Milka-Oreo sandwich súkkulaði niður og geymið.

9

Þeytið rjómaostinn þar til hann verður rjómakenndur og bætið þá flórsykrinum saman við í nokkrum skömmtum, bætið fræjum úr vanillustönginni saman við.

10

Þá fer gelatínblandan saman við og næst má vefja rjómanum varlega saman við allt.

11

Að lokum fer saxaða Milka-Oreo súkkulaðið í blönduna og það má vefja því varlega inn í hana og síðan hella allri blöndunni ofan á Oreobotninn.

12

Gott er að kæla kökuna á þessu stigi í að minnsta kosti 4 klst í ísskáp eða yfir nótt áður en súkkulaðihjúpurinn er settur ofan á.

Súkkulaðihjúpur
13

Hitið rjómann að suðu og hellið yfir saxað suðusúkkulaði í lítilli skál.

14

Pískið saman þar til súkkulaðið er uppleyst og hellið þá yfir kalda og stífa ostakökuna.

15

Geymið í kæli í að minnsta kosti klukkustund áður en springformið er losað frá kökunni og hún skreytt með ferskum blómum.