Print Options:








Oreo snúðar með rjómaostakremi

Magn1 skammtur

Ómótstæðilegir OREO snúðar frá grunni.

 120 ml volgt vatn
 2 ¼ tsk þurrger
 1 tsk sykur
 125 ml nýmjólk
 50 g sykur
 1 egg
 1 eggjarauða
 500 g hveiti
 70 g smjör, mjúkt
 50 g muldar Oreo kökur
Fylling
 75 g mjúkt smjör
 40 g sykur
 100 g muldar Oreo kökur
Rjómaostakrem
 120 g Philadelphia rjómaostur
 60 g mjúkt smjör
 ½ tsk vanilludropar
 170 g flórsykur
1

Velgið vatn að 37-40°C.

2

Hrærið geri og 1 tsk af sykri saman við og setjið í hrærivélaskál. Bíðið í 5 mín á meðan blandan fer að freyða.

3

Setjð þá saman við mjólkina, sykurinn, eggið, eggjarauðu og hrærið með króknum.

4

Blandið þá hveitinu saman við, fyrst ca. 250g og hrærið vel, og bætið svo restinni rólega saman við. Þegar deigið er orðið þokkalega samfellt, setjið þá smjörið saman við í smá bitum og hrærið vel á milli.

5

Að síðustu hnoðið muldum oreo kökum saman við. Takið deigið úr skálinni og hnoðið á borði í smástund og setjið aftur í olíuborna skál. Setjið plastfilmu yfir og látið hefast á volgum stað í 40 mín.

6

Eftir að deigið hefur hefast í fyrsta sinn, þá þarf að taka það úr skálinni og fletja það út í ferhyrning. Aðeins minni en stærð á venjulegri ofnplötu.

7

Smyrjið deigið með smjörinu og stráið sykrinum yfir. Dreifið þá muldum Oreo kökum yfir og þrýstið létt yfir með lófunum.

8

Rúllið upp deiginu og skerið í 12 snúða. Mér finnst best að skipta deiginu fyrst í tvennt og svo helming í 6 hluta svo snúðarnir verði nokkurnveginn jafnir að stærð.

9

Setjið snúðana í ofnfast mót eða skúffukökuform sem hefur verið smurt með smjöri og látið hefast í ofni sem hefur verið hitaður upp í 50°C og úðaður duglega með vatni, í 40 mín.

10

Takið þá snúðana út og hitið ofninn í 180°C. Þegar ofninn hefur náð hita, setjið þá snúðana inn og bakið í 30 mín.

11

Þeytið saman rjómaost og smjör og bætið svo sykri og vanilludropum saman við. Þeytið vel saman.

12

Þegar snúðarnir eru tilbúnir, takið þá úr ofninum og látið þá bíða í 5 mín áður en þið smyrjið kreminu yfir.

13

Dreifið muldum Oreo kökum yfir sem skraut.