Popp með hvítu Toblerone súkkulaði og OREO mulningi.
Poppið örbylgjupoppið samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
Myljið kexið í matvinnsluvél.
Bræðið súkkulaðið, hellið yfir poppið og hrærið vel. Bætið kexmulningnum saman við og setjið blönduna á bökunarpappír.
Kælið í um 15 mínútur.