Print Options:








Oreo eftirréttur með 3 hráefnum!

Magn1 skammtur

Sjúklega einfaldur en bragðgóður eftirréttur

 100 g suðusúkkulaði
 2 dl Oreo, mulið
 150 ml rjómi, þreyttur og skipt niður
1

Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Látið kólna lítillega.

2

Þeytið rjómann og takið síðan helminginn af þeytta rjómanum og setjið í skál.

3

Hellið brædda súkkulaðinu saman við annan rjóma helminginn. Hrærið vel saman.

4

Skiptið súkkulaðirjómanum niður á þrjár litlar skálar eða í glös.

5

Hellið Oreo kurli yfir og þrýstið létt á með skeið.

6

Setjið rjómann að lokum yfir með skeið eða með sprautu.

7

Skráið fínlega muldu Oreo yfir rjómann. Geymið í kæli þar til borið fram.