Print Options:








Oreo Crumbs bollakökur

Magn1 skammtur

Æðislega góðar Oreo bollakökur þar sem notast er við Oreo Crumbs. Ofur létt Oreo krem með bollakökunum gerir þær ómótstæðilegar.

Oreo Crumbs bollakökur
 85 g mjúkt smjör
 100 ml gul Filippo Berio olía
 2 ½ dl sykur
 3 egg
 2 tsk vanilludropar
 5 dl hveiti
 ½ tsk salt
 2 tsk lyftiduft
 2 ½ dl súrmjólk
 80 g Oreo Crumbs án krems
Ofur fluffy Oreo krem
 350 g mjúkt smjör
 350 g flórsykur
 1 dl rjómi
 80 g Oreo Crumbs án krems
Oreo Crumbs bollakökur
1

Kveikið á ofninum og stillið á 180°C og stillið á undir+yfir hita.

2

Hrærið saman smjör, olíu og sykur þar til létt og ljóst.

3

Bætið eggjunum út í, eitt í einu og hrærið á milli.

4

Bætið vanilludropunum saman við.

5

Blandið saman hveiti, salti og lyftidufti. Setjið helminginn af hveiti blöndunni út í eggjablönduna ásamt helmingnum af súrmjólkinni, blandið saman. Setjið restina af hveitiblöndunni og súrmjólkinni út í og blandið saman.

6

Bætið Oreo crumbs út í og hrærið þar til allt hefur samlagast.

7

Setjið pappírs bollakökuform í bollaköku álbakka og fyllið hvert form upp 2/3 af deigi.

8

Bakið í 10-15 mín eða þar til bakað í gegn.

9

Útbúið kremið.

Ofur fluffy Oreo krem
10

Þeytið saman smjör og flórsykur þar til mjög mjúkt, létt og loftmikið.

11

Bætið þá út i rjómanum og þeytið mjög vel áfram þar til mjög mjúkt, létt og loftmikið.

12

Bætið Oreo Crumbs út í og þeytið saman við.

13

Setjið kremið í sprautupoka með stórum opnum stjörnustút. Sprautið kremi á hverja köku og skreytið með Oreo Crumbs.