Gómsætar Oreo bollur með súkkulaðirjóma.
Uppskrift
Hráefni
Leiðbeiningar
Hitið ofninn í 180°C.
Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og geymið.
Hitið saman vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit og takið þá af hellunni.
Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið/vefjið saman við með sleif þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins.
Flytjið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægsta hraða með K-inu og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blöndunni.
Pískið eggin saman í skál og setjið þau saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Best er að vigta blönduna því egg eru misstór og nota aðeins 160 g henni til þess að deigið verði ekki of þunnt.
Setjið bökunarpappír á ofnplötur og hver bolla má vera um 2 matskeiðar af deigi (ein vel kúpt matskeið).
Bakið í 27-30 mínútur, bollurnar eiga að vera orðnar vel gylltar og botninn líka, ekki opna þó ofninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur til að kíkja undir eina. Helstu mistök sem fólk gerir er að baka bollurnar ekki nógu lengi og þá geta þær fallið.
Þeytið rjóma og bökunarkakó saman.
Vefjið Milka Oreo súkkulaði saman við súkkulaðirjómann og setjið á bollurnar.
Hrærið saman brætt smjör, flórsykur, bökunarkakó og vanilludropa þar til slétt og falleg súkkulaðibráð hefur myndast.
Smyrjið á bollurnar og skreytið með Oreo Crumbs.
Þeytið rjómann, setjið í sprautupoka og sprautið smá rjóma á hverja bollu og stingið litlu Oreokexi ofan í rjómatoppinn.