Óhefðbundnar sörur en ó-svo-dásamlegar!

Uppskrift
Hráefni
2 eggjahvítur
2 dl sykur
1/2 tsk lyftiduft
50 g Daim, mulið smátt
200 g rjómasúkkulaði
Smjörkrem
2 stk eggjarauður
2 msk síróp
100 g mjúkt smjör
60 g Daim, mulið smátt
1 msk Cadbury kakó
Leiðbeiningar
1
Stífþeytið eggjahvítur og bætið þá sykri saman við, smátt og smátt. Þegar allur sykurinn er kominn saman við, þeytið í 3 mínútur til viðbótar.
2
Bætið lyftidufti og muldu Daim varlega saman við.
3
Látið á bökunarplötu með skeið og bakið í 150°c heitum ofni í um 15 mínútur eða þar til marengsinn er orðinn stökkur að utan.
4
Smjörkremið: Þeytið eggjarauður þar til þær eru orðnar léttar og ljósar. Bætið þá sírópi rólega saman við.
5
Bætið þá mjúku smjörinu saman við.
6
Endið á að hræra muldu Daim og kakó saman við kremið með sleif.
7
Smyrjið kreminu á botnana og dýfið í brætt rjómasúkkulað.
8
Geymist í frysti eða kæli.
Uppskrift frá GRGS.
Hráefni
2 eggjahvítur
2 dl sykur
1/2 tsk lyftiduft
50 g Daim, mulið smátt
200 g rjómasúkkulaði
Smjörkrem
2 stk eggjarauður
2 msk síróp
100 g mjúkt smjör
60 g Daim, mulið smátt
1 msk Cadbury kakó