Ofureinfalt útilegukakó

Ofureinfalt og ljúffengt kakó tilvalið í útileguna

 1x 305 ml niðursoðin dósamjólk (condensed milk)
 vatn
 5 msk Cadbury bökunarkakó
 Sykurpúðar
 Sprauturjómi eða venjulegur þeyttur rjómi
 Súkkulaðispænir (má sleppa)

1

Hellið dósamjólkinni í pott

2

Fyllið svo dósina af mjólkinni 2 x af vatni og hellið saman við

3

Bætið svo 5 msk af kakó út í og hrærið vel

4

Grillið sykurpúða

5

Þegar kakóið er byrjað að sjóða hellið því þá í bolla og toppið með sykurpúðum og rjóma