Print Options:








Ofureinfalt Alfredo pasta með kjúkling og Broccoli

Magn1 skammtur

Alfredo pasta er vinsæl Ítölsk uppskrift þar sem flötu pasta eins og fettuccine eða tagliatelle er blandað í sósu þar sem uppistaðan er smjör og parmesan.

Alfredo sósa
 110 gr smjör
 1 askja Philadelphia Original
 1,5 tsk hvítlauksduft (Garlic powder, alls ekki hvítlaukssalt)
 3 dl rjómi
 1 msk Oscar kjúklingakraftur í duftformi
 180 gr rifinn parmesan ostur
 1/2 tsk salt
 1/4 tsk svartur pipar
Annað
 2 kjúklingabringur
 lítill brokkólí haus
 3 msk ólífuolía
 Salt og pipar
 250 gr ósoðið De Cecco tagliatelle All´Uovo
Aðferð
1

Skerið bringur í langa þunna bita og hitið ólífuoliu á pönnu

2

Steikið bringurnar í olíunni og saltið og piprið

3

Þegar bringurnar taka á sig hvítan lit má bæta brokkóli út á og steikja saman þar til bringurnar eru smá brúnaðar og brokkólíið glansandi grænt og fallegt

4

Takið af pönnunni og setjið á disk til hliðar

5

Sjóðið nú pastað í vel söltuðu vatni í 7 mínútur, vatnið á að vera nánast jafn saltað og sjóvatn

6

Gerið sósuna á meðan pastað sýður en notið sömu pönnuna til verksins og kjúklingurinn var á án þess að þrífa neitt á milli

Alfredo sósa
7

Byrjið á að bræða smjörið á pönnuni við vægan hita

8

Þegar smjörið er bráðnað bætið þá Philadelphia ostinum og hvítlauksduftinu saman við og hrærið vel, þetta verður alveg smá aðskilið og skrítin áferð en ekki hafa áhyggjur af því, það á að vera þannig á þessu stigi

9

Bætið næst við rjómanum og kjúklingakraftinum og hrærið vel við vægan hita þar til byrjar að sjóða, lækkið þá aðeins undir og bætið salti, pipar og parmesan ostinum, við smátt og smátt og haldið áfram að hræra

10

Leyfið nú sósunni að sjóða saman í eins og 5 mínútur og hrærið af og til í á meðan

11

Takið svo af hellunni og látið sósuna standa í aðrar 5 mínútur því þá þykknar sósan

12

Hellið vatninu af pastanu en alls ekki skola það !!!

13

Setjið kjúklinginn og brokkólíið saman við sósuna og blandið saman

14

Hægt er að bera pastað fram sér og fá sér sósu ofan á eða blanda pastanu saman við sósuna og bera þannig fram

15

Mæli með að hafa hvítlauksbrauð með þessum rétti og jafnvel ferskt salat