Print Options:

Ofureinfaldur Satay kjúklingapottréttur með salthnetumylsnu og grjónum

Magn1 skammtur

Dásamlegur réttur, mildur hnetu og chilikeimur sem ég poppa ögn upp með dásamlegri fiskisósu, soya og hvítlauksmauki til að gefa réttinum ögn meiri skerpu og bragð.

Satay kjúklingur
 4 stk kjúklingabringur eða 800-900 gr úrbeinuð læri frá Rose Poultry
 ½ dl grænmetisolía til steikingar
 1 stk lítill rauður chilibelgpipar án fræja
 1,50 stk niðurskorinn vorlaukur (skera hann allan líka græna efsta hlutann)
 1 stk krukka af Satay sósu frá Blue Dragon
 2 tsk hvítlauksmauk
 1 msk Soya sósa frá Blue Dragon
 1 tsk fiskisósa frá Blue Dragon
 2 stk pokar af Tilda Pure Basmatigrjónum í pokum
Toppun
 ½ bolli jarðhnetur (salthnetur) malaðar í blandara
 Fersk steinselja eða Kóríander (mæli frekar með steinselju en sumir elska kóríander)
Hvar fæst Blue Dragon Satay sósan?
 Bónus
 Fjarðarkaup
 Hagkaup
 Krónunni
 Melabúðinni o.fl. verslunum
1

Skerið niður chili og vorlauk í litla bita

2

Skerið kjúklingin niður í gúllasbita eða lengjur

3

Setjið grjónin í pott og saltið og látið sjóða meðan verið er að gera réttinn

4

Hitið olíuna á pönnu og setjið vorlauk og chili út á og lækkið hitann um leið og leyfið að mýkjast ögn

5

Bætið næst kjúklingnum út á og saltið vel yfir

6

Þegar kjúklingurinn er komin með hvítan lit á sig, (þarf ekki að steikjast í gegn verður þá þurr), bæti ég hvítlauksmaukinu út á og hræri vel saman

7

Næst set ég svo krukkuna af Satay sósunni út á og bæti við soya og fiskisósunni

8

Hærið vel saman og leyfið að sjóða í eins og 20 mínútur án loks

9

Setjið salthneturnar í blandara og maukið þar til verður að grófu dufti

10

Skerið steinselju smátt niður

11

Berið nú fram með grjónum, hnetumylsnu og steinselju til að dreifa yfir

Nutrition Facts

0 fyrir hvað marga, hvað mörg stykki

Serving size