Ekta „comfort“ matur sem allri fjölskyldunni finnst góður. Klassískur parmesan kjúklingur eða „Chicken parmigiana” er fyrirmynd réttarins en þessi útgáfa er fljótlegri og einfaldari. Rétturinn inniheldur pasta, kjúkling, cherry- og basil pastasósu, rjómaost, parmesan, panko rasp og mozzarella.

Uppskrift
Hráefni
4 stk Eldaðar kjúklingabringur
400 g Penne pasta frá De Cecco
1 stk Philadelphia rjómaostur
1 stk Dós Heinz Cherry Tomato & Basil pasta sósa
Salt og pipar eftir smekk
4 dl Rifinn parmesan ostur
1 dl Panko rasp
30 g Smjör
Ferskar mozzarellakúlur 1-2stk
Fersk basilika
Leiðbeiningar
1
Byrjið á því að sjóða penne pasta eftir leiðbeiningum.
2
Dreifið rjómaosti á botninn á eldföstu formi.
3
Sigtið vatnið frá pastanu og blandið Heinz sósunni saman við. Kryddið með salti og pipar eftir smekk.
4
Dreifið kjúklingnum yfir.
5
Bræðið smjör og blandið saman við panko rasp og parmesan ost.
6
Dreifið raspinum yfir kjúklinginn og bakið í ofni í 7 mínútur við 180°C.
7
Rífið ferskan mozzarella yfir og bakið í aðrar 7 mínútur.
8
Dreifið basilíku yfir og njótið.
MatreiðslaKjúklingaréttir, Pasta
Hráefni
4 stk Eldaðar kjúklingabringur
400 g Penne pasta frá De Cecco
1 stk Philadelphia rjómaostur
1 stk Dós Heinz Cherry Tomato & Basil pasta sósa
Salt og pipar eftir smekk
4 dl Rifinn parmesan ostur
1 dl Panko rasp
30 g Smjör
Ferskar mozzarellakúlur 1-2stk
Fersk basilika