Print Options:








Ofnbakað penne pasta með pestó og bökuðu grænmeti

Magn6 skammtar

Á svona vetrardögum er djúsí og næringaríkur pastaréttur málið. Bakað penne pasta sem líkist lasagne með nóg af grænmeti, osti, bechamel sósu og rauðu pestói.

 500 g penne pasta frá De cecco
 4 stk gulrætur
 1 stk lítill laukur
 3 stk hvítlauksrif
 200 g sveppir
 1 stk kúrbítur
 200 g brokkolí
 250 g kokteiltómatar
 1 stk Rautt pestó frá Filippo Berio
 ólífuolía
 salt og pipar
 gott að krydda með þurrkaðri basiliku og oregano
 ½ dl parmiagiano reggiano
 3 dl rifinn mozzarella
 2 dl rifinn havarti ostur
Bechamel sósa
 50 g smjör
 4 msk hveiti
 5 dl mjólk
 salt og pipar
 laukduft
 2 dl rifinn parmigiano reggiano
1

Byrjið á því að skera gulrætur, lauk, sveppi, kúrbít, brokkolí og tómata í bita.

2

Steikið gulræturnar upp úr ólífuolíu og mýkið þær aðeins.

3

Bætið svo lauk og hvítlauk saman við og steikið í 2 mínútur á miðlungshita. Setjið sveppi, kúrbít, brokkólí og kokteiltómata saman við. Steikið í 4-5 mínútur og bætið pestóinu saman við og kryddið

4

Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum.

5

Dreifið bechamel sósunni í botninn á ca. 26 x 36 cm eldföstu móti og setjið til skiptis penne pasta, grænmeti og bechamel sósu. Þið ættuð að ná þremur lögum ef þið notið álíka stórt mót og ég.

6

Dreifið rifnum mozzarella, havarti osti og parmesan yfir allt saman og bakið inn í ofni við 190°C í 10-12 mínútur. Gott að bera fram með klettasalati og ólífuolíu, Njótið.

Bechamel sósa
7

Bræðið smjör í potti og bætið hveiti saman við. Hrærið í hveitibollu.

8

Hellið mjólkinni saman við og hrærið þar til hún hefur þykknað aðeins.

9

Kryddið eftir smekk og hrærið parmigiano reggiano saman við. Bætið mjólk saman við ef að þið viljið hafa sósuna þynnri.

Nutrition Facts

Fyrir hvað marga, hvað mörg stykki 6