fbpx

Ofnæmisvænar kókoskúlur

Kókoskúlur er eitthvað sem við eigum reglulega heima enda frábært að grípa í milli mála fyrir smá auka orku og það skemmir auðvitað ekki að þær séu sætar og góðar. Kókoskúlur geta verið hlaðnar frábærum næringarefnum og flottar til að grípa með sér í nesti í skólann eða til að borða eftir æfinguna. Hefðbundnar hollari kókoskúlur innihalda þó oft hnetur sem ekki eru svo vinsælar í skólum og jafnvel í þróttahöllum en hér erum við með hnetulausar kókoskúlur þar sem ég nota sólblómafræ í staðinn fyrir hnetur. Ekki bara góðar og hentugar heldur líka skemmtileg leið til að fá börn til að borða fræ. Sólblómafræ eru nokkuð hlutlaus á bragðið og áferðin mjúk svo það er auðvelt að skipta hnetum út fyrir sólblómafræ í fleiri uppskriftum af kókoskúlum ef þú átt þína uppáhalds. Hér er allavega innblástur en ég hvet þig líka til að prófa þig áfram.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 12 stk ferskar döðlur (takið steininn úr)
 1 dl lífræn sólblómafræ frá Rapunzel
 ½ dl lífrænt kókosmjöl frá Rapunzel
 1 msk ífræn kókosolía frá Rapunzel
 2 msk hampfræ
 1 msk lífrænt kakóduft frá Rapunzel
 nokkur saltkorn

Leiðbeiningar

1

Byrjið á að steinhreinsa döðlurnar. Svo er öllum innihaldsefnum komið fyrir í matvinnsluvél og maukað saman þar til orðið klístrað, tollir saman og hægt að rúlla í kúlur.

2

Rúllið kúlunum uppúr kókos og/eða kakó eða sleppið.

3

Hægt er líka að byrja á að setja fræin fyrst og mylja í mjöl og bæta svo döðlunum við til að fá áferðina ennþá fínni en þetta er smekksatriði og ég elska bæði.

Verði ykkur að góðu.

DeilaTístaVista