Print Options:








Oatly bolla

Magn1 skammtur

Bolla með berjum og vanillusósu.

Vatnsdeigsbollur
 80 g smjör
 2 dl vatn
 100 g hveiti
 Smá salt
 2-3 stk egg
 (Einnig hægt að nota VEGAN bollur)
Fylling
 250 ml Oatly vanillusósa
 Driscoll's hindber, jarðaber og brómber
 250 g Rapunzel Kókos og Möndlusmjör m/döðlum
 (eða Rapunzel smyrja eftir smekk)
Á toppinn
 80 g Rapunzel appelsínusúkkulaði
Vatnsdeigsbollur
1

Setjið smjör og vatn í pott. Sjóðið þangað til smjörið bráðnar.

2

Setjið hveiti og salt út í og hrærið vel með sleif þangað til deigið hættir að festast við pottinn og sleifina. Kælið og setjið deigið í hrærivélaskál og bætið eggjunum út í, einu í einu, og hrærið vel á milli.

3

Notið tvær teskeiðar eða setjið deigið í sprautupoka og sprautið bollur á smjörpappírsklædda plötu.

4

Bakið við blástur 200°C í 25 mínútur.

Oatly fylling:
5

Skerið berin smátt og blandið saman við vanillusósuna.

Á toppinn:
6

Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og hellið yfir bolluna.

Oatly bolla:
7

Raðið bollunni saman, botn, fylling, smyrja, toppur og súkkulaði.