fbpx

Nusicaostakaka með Oreobotni

Ljúffeng Oreo ostakaka með súkkulaðismjöri.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Botn
 12 Oreo kexkökur
 3 msk smjör, brætt
Fylling
 225 g Philadelphia rjómaostur
 2/3 bolli Nusica súkkulaðismjör
 1 tsk vanilludropar
 1 askja (225 g) Cool Whip (fæst í Hagkaup), sem hefur þiðnað í ísskáp í amk 4 klst.

Leiðbeiningar

Botn
1

Myljið Oreo kexkökurnar (t.d. í matvinnsluvél), bræðið smjörið og hrærið saman. Skiptið blöndunni jafnt á milli þeirra skála eða glasa sem á að bera kökurnar fram í, þrýstið blöndunni í botninn og leggið til hliðar.

Fylling
2

Setjið rjómaost og Nusica í skál og hrærið saman með handþeytara eða í hrærivél þar til blandan er mjúk og einlit. Hrærið vanilludropum saman við. Notið sleikju til að blanda Cool Whip saman við blönduna, vinnið allt varlega saman þar til blandan er orðin einlit og engar rendur í henni. Setjið fyllinguna yfir Oreobotninn (ég setti fyllinguna í sprautupoka og sprautaði henni í skálarnar). Setjið plastfilmu yfir og geymið í ísskáp þar til borið fram.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
SmjördeigshjörtuÞað getur verið svo ljúft að baka eitthvað sem er ofureinfalt en á sama tíma ljúffengt og fallegt. Þessi uppskrift…
MYNDBAND
JarðaberjarósirJarðarberjarósir, brætt Toblerone og freyðivín er fullkomið trít fyrir Valentínusardaginn 🌹🥂 Komdu ástinni þinni á óvart með öðruvísi blómvendi sem…
MYNDBAND
JarðaberjabollurEinfaldar og bragðgóðar vatnsdeigsbollur fylltar með jarðarberjarjóma og toppaðar með hvítu súkkulaði. Hér eru notuð bragðgóðu jarðarberin frá Driscolls í…