Print Options:








Nautasteik í gúrm marineringu

Magn1 skammtur

Frábær steik sem þið hreinlega verðið að prufa.

 800 g nautasteik, t.d. rib eye eða annað að eigin vali
 svartur pipar
 1 1/2 dl ostrusósa, t.d. Oyster sauce frá Blue dragon
 2 msk chili mauk, t.d. minched chili frá Blue dragon
 2 msk dijon sinnep
 3 msk af mango chutney, t.d. frá Mango chutney frá Patak’s
1

Kryddið kjötið ríflega með svörtum pipar.

2

Blandið öllum hráefnum fyrir marineringuna saman í skál og leggið nautakjötið í marineringuna. Marinerið í 2-4 klukkustundir eða lengur ef tími vinnst til.

3

Grillið steikurnar og berið fram með frönskum og góðu salati.