Print Options:








Nauta tataki

Magn4 skammtarTími í undirbúning15 minsTími í eldun2 hrsTotal Time2 hrs 15 mins

Sælkeraréttur sem gaman er að bera fram sem smárétt með öðrum réttum.

 400 g Nautafile
 3 msk Blue Dragon sesamolía
 200 ml Blue Dragon sojasósa
 3 msk engifer, saxað
 3 stk hvítlauksrif, saxað
Sítrus sojadressing
 2 msk sítrónusafi
 4 msk Blue Dragon hrísgrjónaedik
 4 msk mirin
 4 msk Blue Dragon sojasósa
 1 msk Blue Dragon sesamolía
Meðlæti
 2 stk gulrætur
 0,50 stk gúrka
 4 stk radísur
 1 stk búnt vorlaukur
1

Grillið nautafile í 3 mínútur á hvorri hlið.

2

Hrærið saman sesamolíu og sojasósu ásamt hvítlauk og engifer.

3

Takið kjötið af grillinu, leggið það í kryddlöginn og látið það liggja í 2 klst eða lengur. Skerið síðan kjötið í þunnar sneiðar.

Sítrus sojadressing
4

Hrærið öllu saman í skál.

Meðlæti
5

Skerið grænmetið í þunna strimla og berið fram með nautinu ásamt niðurskorinnim límónu og kóríander.

Nutrition Facts

Fyrir hvað marga, hvað mörg stykki 4