Print Options:








Nachos kjúklingaréttur með mexíkó rjómaostasósu

Magn1 skammtur

Kjúklingaréttur með stökkum nachos flögum, grænmeti og mexíkó-rjómaostasósu sem slær öll met á heimilinu.

 4-5 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry (fást í öllum helstu matvöruverslunum sem frystivara)
 paprikukrydd
  salt og pipar
 1 rauð paprika, smátt skorin
 1 laukur, saxaður
 2 tómatar, smátt skornir
 1 poki tortilla flögur
 250 g Philadelphia
 1 stk (150 g) mexíkóostur, rifinn
 2 dl matreiðslurjómi
 150 g rifinn ostur
1

Skerið kjúklingabringurnar í litla munnbita, kryddið með paprikukryddi, salti og pipar og steikið á pönnu þar til þær eru eldaðar í gegn.

2

Setjið mexíkóost, rjómaost og matreiðslurjóma í pott og bræðið saman.

3

Dreifið 1/4 af flögum í botninn á eldföstu móti, setjið helminginn af kjúklingabringunum yfir og smá af ostablöndunni hellt yfir hann. Helmingnum af grænmetinu dreift yfir, helmingi af brædda ostinum og helmingi af rifna ostinum. Endurtakið síðan, flögur, kjúklingur, grænmeti, bræddur ostur og að lokum rifinn ostur yfir allt

4

Setjið inn í 180°c heitan ofn og hitið í um 15 mínútur.

5

Berið fram t.d. með salsasósu, guagamole, sýrðum rjóma, hrísgrjónum og/eða góðu salati.