Print Options:








Morgunmatur flugfreyjunnar

Magn1 skammtur

Einnig er hægt að setja morgunmatinn í krukkur eins og ég geri hér til að taka með í nesti.

 1/2 bolli grísk jógúrt frá Pascual
 1 tsk Chia fræ
 Lúka af ferskum bláberjum frá Driscolls
 Lófafylli af ávaxtamúslí (Früchte Müsli) frá Rapunzel
 Ristað lífrænt ræktað kókósmjöl eða kókósflögur frá Rapunzel
 3-4 pekanhnetur
 Rapunzel döðlusíróp eftir smekk yfir toppinn
 Um helgar er rosa gott að toppa þetta með súkkulaði kókósbitunum frá Rapunzel sem er hollari útgáfan af Bounty
1

Byrjið fyrst af öllu að setja eina tsk af chiafræum saman við 1 msk af vatni og látið standa í örlitla stund meðan þið takið fram restina af hráefninu og ristið kókósmjöl eða kókósflögur

2

Setjið svo jógurtina í skál og hrærið útbleyttu chiafræunum og bláberjunum rólega saman við

3

Setjið svo múslíið næst yfir og toppið með ristaða kókósinum

4

Myljið svo pekanhneturnar með fingrunum yfir allt og berið fram með döðlusírópinu sem er sett efst ofan á allt heila klabbið eins og sósa

5

Um helgar er svo gott að skera í bita kókósbitana og setja yfir svona spari