Print Options:








Mjúkir kanilsnúðar í hollari kantinum með Tonka kremi

Magn1 skammtur

Hvað er betra en dúnmjúkur nýbakaður kanilsnúður rjúkandi heitur beint úr ofninum ? Jú rjúkandi hollur heitur kanilsnúður.

Snúðar
 400 gr lífrænt ræktað hveiti helst
 25 gr pressuger (fæst í kælinum í Fjarðarkaup og Hagkaup)
 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft
 125 ml volg haframjólk
 1/2 dl olía
 40 gr Rapadura sykur frá Rapunzel
 2 egg
 1 tsk salt
Fylling
 250 gr eða ein krukka Coconut Almond butter frá Rapunzel
 60 gr Rapadura sykur frá Rapunzel
 2 msk kanill
 2 msk valmúgafræ frá Rapunzel
Krem ofan á
 1 krukka eða 250 gr Mandel Tonka Creme frá Rapunzel
Snúðar
1

Setjið hveiti og salt í hrærivélarskál

2

Setjið svo pressuger, volga mjólkina og sykurinn í aðra skál sem er minni og hrærið vel saman. Látið standa í 5 mín

3

Bætið vanillu, eggjum og olíu saman við gerið og hrærið allt vel saman

4

Hellið svo gerblöndunni út í hveitið og látið hnoðast vel saman, ef deigið er blautt bætið þá ögn við af hveiti, bara örlítið í einu smátt og smátt þar til deigið hringar sig um kúluna og klessist ekki á höndunum

5

Breiðið þá stykki yfir hrærivélarskálina og látið hefast í 1 klst, best í gluggakistu yfir miðstöðvarofni

Fylling
6

Takið möndlusmjörið, sykurinn og kanilinn og hrærið vel saman í skál

7

Geymið valmúgafræin til hliðar

Samsetning
8

Nú er gott að byrja á að hita ofninn á 180 C°blástur

9

Fletjið svo deigið út í þykkan ferning á stærð við A4 blað kannski ögn stærra

10

Smyrjið næst fyllingunni á deigið og sáldrið 1,5 msk af valmúgafræum yfir

11

Rúllið nú deiginu upp í pulsu og skerið snúða sem eru c.a 8-10 cm þykkir og raðið í gott mót með smá bili á milli. Það eiga að nást c.a 10-12 snúðar úr deiginu

12

Sáldrið restinni af valmúgafræunum yfir og stingið í ofninn í 20 mín

13

Takið svo úr ofninum og smyrjið allri krukkunni af tonka kreminu vel yfir allt saman og þekið snúðana vel með því

14

Best að bera þá fram heita og með kaldri mjólk eða góðu kaffi

Auka Punktar
15

Best er að baka snúðana í góðu eldföstu móti og hafa ögn bil á milli þeirra þegar þeim er raðað í mótið því þeir hefast enn meir í ofni og blása út. Ég mæli með að bera snúðana fram sjóðheita og setja kremið strax á þá. Afgang má svo hita upp í örbylgju á 20-30 sekúndur og þá verða þeir sem nýjir. Pressuger er notað í snúðana en það er yfirleitt að finna í kæli verslana