Print Options:








Milka Brownies

Magn1 skammtur

Einföld og bragðgóð Milka súkkulaði brownie kaka.

 100 gr sykur
 2 egg
 112 gr bráðið smjör
 1 tsk vanilludropar
 1 tsk instant kaffi
 40 gr Cadbury kakóduft
 60 gr hveiti
 ½ tsk salt
 100 gr Milka súkkulaði að eigin vali (ég notaði daim)
1

Hitið ofninn 180 gráður

2

Þeytið saman sykur og egg þangað til það er ljóst á litinn og létt

3

Blandið saman bræddu smjöri, vanilludropum og instant kaffi þangað til kaffið leysist upp.

4

Blandið því svo við egg og sykur blönduna.

5

Sigtið kakóduftið, hveitið og saltið út í deigið og blandið

6

Saxið milka súkkulaðið í litla bita og blandið út í deigið.

7

Setið deigið í smurt form og bakið í 30 mínútur