Print Options:








Mexíkanskt lasagna

Magn1 skammtur

Lasagna með mexikönskum áhrifum sem þú verður bara að prófa

Lasagna
 600 g nautahakk (eða vegan hakk)
 Ólífulía
 1 laukur, smátt skorinn
 2 hvítlauksrif
 Chili explosion
 Paprikukrydd
 Salt og pipar
 230 g salsa sósa (ein krukka)
 De Cecco lasagna plötur
 500 g kotasæla (ein stór pakkning)
 250 g Philadelphia rjómaostur (ein pakkning)
 4 dl rifinn cheddar ostur
 1 ferskur maískólfur
 1 msk smjör
 1 dl stappaður fetakubbur
 Cayenne pipar
 Kóríander eftir smekk, smátt saxað
Avókadó salsa
 2 avókadó
 10 kokteiltómatar
 Safi úr ½ lime
 1 msk kóríander, smátt saxað
Lasagna
1

Byrjið á því að skera laufblöðin af maískólfinum með því að skera af efsta hlutann af (þar sem hann er minnstur um sig) og flettið laufblöðunum af honum.

2

Leggið maískólfinn í eldfast mót, dreifið smjörinu ofan á og bakið í 30 mínútur við 190°C. Skerið eða skafið maísinn af maískólfinum og skiptið í þrjá hluta.

3

Steikið laukinn upp úr ólífuolíu við vægan hita. Þegar hann er búinn að mýkjast þá bætið þið við nautahakkinu og pressið hvítlauksrifin út í og kryddið. Hellið salsa sósunni út í og hrærið.

4

Blandið saman kotasælu og rjómaosti.

5

Smyrjið eldfast mót (ég notaði steypujárnspönnu) með ólífuolíu og setjið til skiptis lasagnaplötur, hakkið, ostablönduna, rifinn cheddar ost og maís. Þið ættuð að ná þremur lögum ef þið notið álíka stórt mót og ég. Ath. ekki setja maís ofan á lasagna í lokin.

6

Bakið lasagnað í 20-25 mínútur við 190°C með blæstri.

7

Blandið saman ⅓ af maísnum, stöppuðum fetakubbi og cayenne pipar.

Avókadó salsa
8

Skerið avókadó, tómata og kóríander smátt.

9

Blandið öllu saman og kreistið lime yfir.

10

Þegar lasagnað er tilbúið þá toppið þið það með avókadó salsa, maís- og fetablöndunni og ferskum kóríander.