Print Options:

,,Marry me“ kjúklingapasta

Magn1 skammtur

Þetta pasta á rætur sínar að rekja til „Marry me Chicken“ sem er kjúklingaréttur sem er svo góður að það fær alla sem smakka hann til þess að vilja giftast þeim sem útbjó hann! 

 500 g De Cecco Mezze Rigatoni pasta(De Cecco er m.a fáanlegt í Nettó, Fjarðarkaup og Melabúðinni)
 600 g kjúklingalundir
 3 stk hvítlauksgeirar
 250 ml rjómi
 30 g Parmareggio parmesan ostur + meira til að rífa yfir
 200 g sólþurrkaðir tómatar
 salt og pipar
 1 tsk papríkuduft
 1 tsk Oregano
 2-3 msk maizenamjöl
 ólífuolía og smjör til steikingar
 fersk basilika
1

Sjóðið pasta al dente í söltu vatni.

2

Skerið kjúklingalundirnar niður og steikið upp úr ólífuolíu, kryddið eftir smekk, færið yfir á disk þegar tilbúnar.

3

Setjið smá smjörklípu á sömu pönnu og steikið hvítlaukinn við vægan hita þar til hann mýkist örlítið.

4

Bætið þá kjúklingasoði, rjóma og rifnum parmesan osti saman við og pískið saman þar til kekkjalaust, þykkið eftir smekk með maizenamjöli og kryddið.

5

Skerið sólþurrkaða tómata niður í minni bita og bætið saman við ásamt elduðum kjúklingnum og soðnu pastanu.

6

Blandið vel saman og toppið með rifnum parmesan osti og ferskri basilíku.

Nutrition Facts

0 fyrir hvað marga, hvað mörg stykki

Serving size