Print Options:








Marabou Daim ostakaka

Magn10 skammtar

Ostakökur eru sívinsælar og þessi hér er dásamlega ljúffeng með stökkum Oreobotni og mjúkri ostaköku með stökkum Marabou Daim bitum. Það er ýmist hægt að setja þær í form líkt og hér og skera þær í sneiðar en einnig er hægt að skipta uppskriftinni niður í nokkur minni glös og þá mætti sleppa gelatíninu. Það er hins vegar nauðsynlegt ef þið gerið heila köku og viljið að hún standi vel.

Botn
 1 pakki OREO kex (16 kökur)
 70 g brætt smjör
Fylling og skreyting
 500 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita
 150 g sykur
 100 g flórsykur
 200 g hvítt Toblerone súkkulaðibrætt
 3 stk gelatínblöð+ 60 ml vatn
 2 tsk vanillusykur
 150 g Marabou Daim bitesgróft saxað + meira til skrauts
 250 ml þeyttur rjómi
 Driscolls jarðarber, hindber og blóm til skrauts
Botn
1

Setjið kexið í matvinnsluvél/blandara og myljið vel niður.

2

Setjið bökunarpappír í botninn á um 20 cm smelluformi og spreyið það síðan að innan með PAM (matarolíuspreyi).

3

Hrærið smjörinu saman við og þjappið kexblöndunni í botninn á smelluforminu, kælið á meðan annað er útbúið.

Fylling og skreyting
4

Leggið gelatínblöðin í bleyti í kalt vatn í nokkrar mínútur.

5

Hitið 60 ml af vatni að suðu, vindið gelatínblöðin upp úr kalda vatninu og setjið saman við, eitt í einu og hrærið á milli þar til þau eru uppleyst. Hellið blöndunni í skál og leyfið að ná stofuhita.

6

Bræðið á meðan Toblerone og leggið til hliðar.

7

Þeytið næst saman rjómaost, sykur, flórsykur og vanillusykur.

8

Hellið matarlímsblöndunni saman við og því næst bræddu Toblerone.

9

Blandið nú þeytta rjómanum varlega saman við með sleif og setjið að lokum Daim bites saman við og hellið í smelluformið, ofan á kexbotninn.

10

Plastið og geymið í kæli í að minnsta kosti fjórar klukkustundir eða yfir nótt.

11

Rennið hníf varlega meðfram smelluforminu áður en þið losið kökuna úr og skreytið.

12

Skreytið með hindberjum, jarðarberjum, Marabou Daim bites og ferskum blómum.

Nutrition Facts

Fyrir hvað marga, hvað mörg stykki 10