Print Options:








Mangó chutney bleikja

Magn1 skammtur

Hér ræður einfaldleikinn ríkjum og bragðlaukarnir dansa!

 700-800 g bleikja
 1 krukka Patak's sweet mango chutney
 6 hvítlauksrif, söxuð smátt
 2 cm engifer, saxað smátt
 2 msk Blue Dragon soyasósa
 Svartur pipar
1

Blandið mangó chutney, engifer, hvítlauk og soyasósu saman í skál og piprið að eigin smekk.

2

Skerið bleikjuna minni stykki og þekjið með chutney blöndunni og látið marinerast í ísskáp eins lengi og tími gefst til.

3

Setjið í fiskigrind og grillið eða látið í ofnfast mót og eldið við 160°c í 10 mínútur eða þar til bleikjan er fullelduð.

4

Berið fram með t.d. sætum kartöflum og salati.

Nutrition Facts

Serving Size 4