Print Options:








Maarud kjúklingaréttur með rösti, beikon og löðrandi í ostum

Magn1 skammtur

Þessi réttur er bara blanda af því besta, tilvalin partýréttur, í saumaklúbbinn eða sem helgarréttur fyrir fjölskylduna

 1 bréf beikon (bara svona frekar lítið en þið ráðið hversu mikið þið viljið)
 500 gr Aviko Rösti kartöflur
 3x kjúklingabringur
 1 dós sveppasúpa
 1 bolli rifinn Mozzarella
 1 bolli rifinn Cheddar
 30 gr rifinn parmesan
 1 bolli rjómi
 1/2 bolli brætt smjör
 1/2 bolli sýrður rjómi
 1 tsk chiliflögur
 10-15 dropar Tabasco® sósa
 1 tsk borðsalt
 1/2 tsk laukduft
 1/2 tsk hvítlauksduft (ath ekki hvílaukssalt)
 1/2 tsk svartur pipar
Ofan á:
 Maarud flögur með salti og pipar
 50 gr rifinn parmesan
 1 tsk paprikuduft
1

Hér þurfið þið stóra skál

2

Hitið ofninn á 210 C°blástur

3

Afþýðið rösti kartöflurnar (ef það hefur gleymst er í lagi að setja þær 20 sek í örbylgjuofninn)

4

Skerið svo bringur í smáa gúllasbita og beikon í smátt

5

Brytjið rösti kartöflurnar niður í skál og setjið kjúklinginn og beikonið út á (hrátt)

6

Hrærið öllu vel saman

7

Takið nú aðra skál og setjið restina af hráefnunum út í hana. Sem sagt súpuna, mozzarella, cheddar, rjóma, brætt smjör, sýrðan rjóma og 30 gr parmesan ost og kryddið með chili flögum, salti, pipar, tabasco, hvítlauksdufti og laukdufti

8

Hrærið þessu mjög vel saman og hellið svo út á kjúklinginn í stóru skálinni

9

Hrærið öllu mjög vel saman og hellið í eldfast mót og stingið í heitan ofninn í 20 mínútur

10

Takið svo út og lækkið ofn niður í 180 C°blástur

11

Stráið 50 gr af parmesan yfir réttinn og myljið Maarud snakk flögur með salt og pipar yfir og kryddið með paprikuduftinu

12

Stingið í ofninn í aðrar 15 mín

Punktar
13

Þennan rétt er afar einfalt að gera og mæli ég með að þú eigir stórt eldfast mót undir hann eða setjir hann í tvö minni mót því þetta er frekar stór uppskrift. Ég myndi hafa þennan sem svona partý rétt fyrir saumaklúbb eða sem heitan rétt í veislu. Hann er líka hægt að hafa sem kvöldmáltíð en þá mæli ég með fersku salati og nóg af því með og jafnvel góðu nýbökuðu snittubrauði líka.