fbpx

Ljúffengur Cajun pastaréttur með kremaðri sósu

Þessi pastaréttur er alveg ótrúlega fljótlegur og einfaldur. Hann er 100% vegan en meira að segja mestu kjötæturnar elska hann. Ég nota í hann vegan pylsur, nóg af grænmeti og sósan er gerð úr dásamlega Oatly smurostinum. Fullkominn hversdags en samt geggjaður í matarboð!

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 200g pastaskrúfur, ég notaði heilkorna frá Rapunzel
 1 græn paprika
 120g sveppir
 10cm blaðlaukur, ég notaði úr miðjunni
 1 hvítlauskrif marið
 2 dósir Oatly smurostur með tómat og basiliku
 3 vegan pylsur að eigin vali skornar í bita
 1 msk sojasósa
 1 msk næringarger
 2 tsk grænmetiskraftur frá Rapunzel (má setja meira ef vill)
 2 msk tómatpúrra
 1 tsk oregano
 1/4 tsk cayenne pipar
 1 tsk paprikukrydd
 1/2 tsk timian
 1/2 tsk steinselja
 salt og pipar eftir smekk
 olía til steikingar

Leiðbeiningar

1

Skerið grænmetið

2

Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka

3

Hitið smá slettu af olíu á pönnu og steikið grænmetið. Það má alveg brúnast aðeins.

4

Setjið smurostana út á grænmetið ásamt kryddum, krafti, sojasósu og tómatpúrru, hrærið vel. Smakkið til með salti og pipar og eflaust fleiri kryddum ef þið viljið.

5

Setjið pastað út á pönnuna og veltið upp úr sósunni. Setjið pylsubitana út í síðast og veltið varlega saman við.

Uppskrift frá Völlu á GRGS.

Matreiðsla, MatargerðMerking,

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir