Print Options:








Ljúffeng hunangs og fíkju kaka

Magn1 skammtur

Ljúffeng hunangs kaka með fíkju rjómaostakremi.

Kaka
 115 g smjör
 1 ¾ dl sykur
 2 egg
 3 ½ dl hveiti
 1 tsk lyftiduft
 ½ tsk kanill
 ½ tsk salt
 1 ¼ dl súrmjólk
 ½ dl hunang
 1 tsk vanilludropar
Fíkju rjómaostakrem
 100 g smjör
 100 g Philadelphia original rjómaostur
 300 g flórsykur
 Bleika kjötið innan úr 2 ferskum fíkjum
 6-8 ferskar fíkjur
1

Kveikið á ofninum og stillið á 175°C.

2

Þeytið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst. Bætið eggjunum út í, einu í einu og hrærið á milli.

3

Blandað saman þurrefnum í eina skál og blautum hráefnum í aðra skál (súrmjólk, hunang og vanilludropar). Setjið helminginn af þurrefnunum út í eggjablönduna og helminginn af blautu hráefnunum, hrærið varlega saman og klárið svo að blanda öllu saman.

4

Smyrjið 23 cm smelluform með smjöri og hellið blöndunni ofan í, bakið í u.þ.b. 35 mín eða þar til kakan er bökuð í gegn.

5

Kælið kökuna og gerið kremið tilbúið með því að þeyta saman smjör og rjómaost þar til létt og ljós, bætið því næst flórsykrinum út í og kjötinu innan úr fíkjunum. Þeytið þar til mjög mjúkt og setjið ofan á kökuna frekar þykkt lag af kremi.

6

Skerið fíkjurnar í 4 hluta hvora og raðið þeim ofan á kökuna.