Print Options:








Lífrænt hrökkbrauð

Magn1 skammtur

Einfalt lífrænt hrökkbrauð sem allir geta gert heima.

 1,5 dl Rapunzel sesamfræ
 1,5 dl Rapunzel graskersfræ
 1 dl Rapunzel sólblómafræ
 1 dl Rapunzel gróft haframjöl
 3,5 dl gróft spelt
 1 ¼ dl Filippo Berio ólífuolía
 2 dl vatn
 Saltflögur eftir smekk
1

Blandið öllum hráefnunum saman nema saltinu.

2

Dreifið blöndunni á bökunarpappír og fletjið þunnt út með því að leggja aðra örk af bökunarpappír yfir og rúlla varlega yfir með kökukefli.

3

Skerið í sneiðar og stráið saltflögunum yfir.

4

Bakið við 200°C í 15-20 mínútur.