fbpx

Lífrænir súkkulaði- & hnetuklattar

Þessar litlu kökur eru mjög þéttar í sér og eru í raun prótínstykki í dulargervi. Þær eru hveitilausar, pakkaðar af næringu, góðri fitu og prótíni. Í þeim eru einungis lífræn gæða hráefni. Það er vel hægt að skipta út hrásykrinum fyrir sykurlausa sætu og eru þær þá í raun orðnar mjög kolvetnasnauðar. Þær hagga varla blóðsykrinum og gefa sérlega góða orku. Ég geri yfirleitt stóran skammt og frysti. Tek út eina og eina sem ég nýt með góðum kaffibolla eða tek með mér í nesti.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 ¼ bolli heilar möndlur, fínt saxaðar frá Rapunzel
 ¼ bolli pekanhnetur, fínt saxaðar frá Rapunzel
 ¼ bolli sólblómafræ frá Rapunzel
 ¼ bolli kasjúhnetur frá Rapunzel
 ¼ bolli graskersfræ frá Rapunzel
 ¼ bolli möndlumjöl eða fínt malaðar heilar möndlur frá Rapunzel
 1 bolli fínt kókosmjöl frá Rapunzel
 1 stk plata 85% súkkulaði frá Rapunzel, fínt saxað
 75 g Cristallino hrásykur frá Rapunzel
 ¼ tsk sjávarsalt, fínt malað
 3 stk stórar eggjahvítur af lífrænum eggjum
 ½ bolli fínt hnetusmjör frá Rapunzel
 ½ tsk vanillukorn lífræn

Leiðbeiningar

1

Hitið ofninn í 175°C blástur og setjið bökunarpappír á ofnplötu.

2

Saxið hneturnar og súkkulaðið og setjið í skál ásamt fræjum, hrásykri, möndlumjöli og kókosmjöli. Hrærið vel í með sleif.

3

Setjið eggjahvítur, vanillukorn, salt og hnetusmjör í skál og þeytið saman með písk. Setjið út í þurrefnin og byrjið að blanda saman með sleifinni.

4

Haldið áfram að hnoða saman með höndunum, persónulega finnst mér best að vera í latexhönskum þegar ég vinn deigið.

5

Mótið deigið í kúlur með því að klessa því saman og rúlla í höndunum. Mótið svo í smáköku/klatta og setjið á bökunarplötu. Það má alveg vera stutt bil á milli þeirra þar sem þær stækka ekkert í ofninum.

6

Bakið í ofninum í 15 - 20 mínútur.

MatreiðslaMatargerðMerking

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…