Print Options:








Lazone kjúklingaréttur

Magn1 skammtur

Vel kryddaður kjúklingur í rjóma-smjör sósu.

 700 g kjúklingalundir frá Rose Poultry
 3 msk ólífuolía extra virgin oil frá Filippo Berio
 4 msk smjör
 2 hvítlauksrif
 500 ml matreiðslurjómi
 salt og pipar
 500 g spagettí
Kryddblanda
 2 tsk reykt paprikukrydd
 1 tsk hvítlauksduft
 ½ tsk cayenne-pipar
 ½ tsk oregano
 salt og pipar
1

Blandið saman hráefnunum í kryddblönduna. Setjið kjúklinginn í skál ásamt 1 msk af ólífuolíu og hellið kryddblöndunni saman við. Nuddið kryddinu vel inn í kjúklinginn.

2

Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu.

3

Hitið 2 msk af smjöri á pönnu og steikið kjúklingalundirnar í 3-4 mínútur á hvorri hlið eða þar til þær eru fulleldaðar. Takið kjúklinginn af pönnunni, setjið á disk og álpappír yfir til að halda hita á kjötinu.

4

Bætið 2 msk af smjöri út á pönnuna ásamt hvítlauk, steikið í 1 mínútu og hrærið stöðugt á meðan. Hellið rjómanum hægt saman við og hrærið vel. Látið malla í 5 mínútur eða þar til sósan fer að þykkna. Saltið og piprið.

5

Hellið soðnu spagettí út á pönnuna og veltið því upp úr sósunni. Berið strax fram með kjúklingalundunum.