Print Options:








Kryddskúffa með rjómaostakremi

Magn1 skammtur

Þessi kaka er tilbrigði við skúffukökur eins og við þekkjum þær nema hún er með dásamlegu kryddbragði og mýkri og blautari í sér. Þetta dásamlega rjómaosta krem er engu líkt!

 2 bollar hveiti
 1 bolli rapaduro hrásykur, frá Rapunzel
 1 bolli cristallino hrásykur, frá Rapunzel
 1/3 bolli kakó, frá Rapunzel
 2 tsk lyftiduft
 1 tsk matarsódi
 1 tsk himalaya salt
 2 tsk vanilludropar
 1/2 tsk negull
 1/2 tsk vanilluduft
 1 dós Oatly hafra sýrður rjómi
 2 tsk eplaedik
 1 bolli soðið vatn
RJÓMAOSTAKREM
 100g vegan smjör eða smjörlíki
 1 dós Oatly smurostur - pamacken
 300g flórsykur
 1 tsk sítrónusafi eða eplaedik
 1 tsk vanilludropar
 hnífsoddur himalaya salt
 1/4 tsk xanthan gum (má sleppa en kremið verður aðeins stífara og heldur sér betur ef það er með)
1

Blandið saman öllum þurrefnum í stóra skál og hrærið með stórum písk þar til engir kekkir eru.

2

Setjið vökvann út í og hrærið þar til deigið er kekkjalaust.

3

Setjið bökunarpappír í skúffukökuform eða smyrjið vel og hellið deiginu í formið. Bakið í 35 mín ca, fer eftir ofnum þó en kakan er tilbúin þegar prjóni er stungið í hana og kemur hreinn út.

4

Leyfið kökunni að kólna alveg áður en kremið er sett á.

RJÓMAOSTAKREM
5

Þeytið smjör/smjörlíki og hafra rjómaostinn vel saman, blandið því næst flórsykri, sítrónusafa, vanilludropum, salti og xanthan gum saman við og þeytið vel þar til kremið er orðið vel samlagað og loftmikið. Smyrjið á kalda kökuna og setjið kökuskraut ef vill.