Print Options:








Kóreskt Nauta Taco

Magn1 skammtur

Nautalund og marinering
 800-1000 g nautalund
 4 msk sykur
 2 msk soya sósa frá Blue Dragon
 1 msk maukað chilli frá Blue Dragon
 1 msk sesamolía frá Blue Dragon
 safi úr 1 límónu
 salt og pipar
 4-6 Mission tortillur
Marinerað grænmeti
 1 meðalstór gulrót
 20 sykurbaunir
 1 rauðlaukur
 safi úr 2 límónum
 1 tsk ylliblómaedik
 1 msk sesamolía frá Blue Dragon
 salt
Nautalund og marinering
1

Verkið sinar af nautalundinni og komið fyrir í skál eða fati.

2

Hrærið saman sykri, soya, chilli mauki, sesamolíu og límónusafa og hellið yfir kjötið, látið marinerast í a.m.k. 30 mín.

3

Grillið lundina í 1 mín á hverri hlið á heitu grillinu, setjið svo upp á efri grind og látið vöðvann eldast þar í rólegheitum áfram þar til það er fulleldað, muna bara að snúa því reglulega.

4

Gott er að nota kjarnhitamæli og viljum við ná kjarnhitanum upp í 55°c áður en kjötið er tekið af grillinu og hvílt í 10 mín.

5

Skerið gulræturnar og rauðlaukinn næfurþunnt á mandólínjárni, skerið baunirnar svo í fína strimla.

Marinerað grænmeti
6

Bætið ediki og límónusafa saman við og látið standa í 30 mín áður en borið fram.

7

Kryddið með ögn af salti við framreiðslu.

8

Þegar allt er tilbúið er tortillunum aðeins skellt á grillið og þær eru tilbúnar.

9

Þegar tortillurnar eru tilbúnar er kjöti, káli og grænmeti bætt á tortilluna og henni svo rúðllað upp.

10

Þessi réttur er borinn fram með tortillum, ferskum salatblöðum, söxuðum vorlauk, pickluðu engifer og jafnvel chili fyrir þá sem vilja enn meiri hita í réttinn.