Print Options:








Kjúklingur í rjómalagaðri hnetusmjörsósu

Magn1 skammtur

Frábær kjúklingur í hnetusósu.

 700 g kjúklingalæri frá Rose Poultry
 kókosolía
 2-3 tsk rautt karrý mauk frá Blue dragon
 3 dl kókosmjólk frá Blue dragon
 3 dl rjómi
 6 msk gróft hnetusmjör
 4 msk soyasósa frá Blue dragon
 safi úr 1-2 límónum
 salt
1

Skerið kjúklinginn í litla bita.

2

Hitið kókosolíu á pönnu og steikið kjúklinginn.

3

Takið kjúklinginn af pönnunni og setjið 1 msk af kókosolíu á pönnuna.

4

Hitið karrý á pönnunni og bætið þá kókosmjólk, rjóma, hnetusmjöri, soyasósu og límónusafa út í.

5

Látið malla við vægan hita í nokkrar mínútur eða þar til sósan hefur þykknað.

6

Bætið kjúklingnum saman við og hitið. Smakkið til með salti.

7

Setjið á disk og stráið salthnetum yfir.

Nutrition Facts

Serving Size 4