Print Options:








Kjúklingur og grænmeti eldað í einu fati

Magn1 skammtur

Kjúklingur og grænmeti eldað í einu fati er æðislegur, bragðgóður og fljótlegur réttur.

 2 kjúklingabringur frá Rose Poultry
 ½ tsk paprika krydd
 Salt og pipar
 ½ tsk oreganó
 1 meðal stór sæt kartafla
 250 g sveppir
 ½ rauðlaukur
 2 hvítlauksgeirar
 3 dl rjómi
 2 tsk kjúklingakraftur frá Oscar
 200 g rifinn ostur með pipar
 Ferskt rósmarín
1

Kveikið á ofninum og stillið á 200°C og undir+yfir hita.

2

Skerið kjúklingabringurnar í tvennt þvert og langsum yfir bringurnar, kryddið þær með salt, pipar, papriku kryddi og oreganó, leggið til hliðar á meðan grænmetið er gert tilbúið.

3

Flysjið kartöfluna og skerið hana í litla bita. Skerið sveppina, hver svepp í 4 hluta. Skerið rauðlaukinn og hvítlaukinn smátt niður, og setjið allt saman í frekar stórt eldfast mót.

4

Setjið kjúklingakraft út í rjómann, hrærið og hellið yfir grænmetið. Dreifið u.þ.b. 100 g af rifna ostinum yfir, kryddið með salt, pipar og oreganó, hrærið örlítið í.

5

Leggið kjúklingabringurnar yfir og bakið inn í ofni í 20 mín. Setjið þá restina af ostinum yfir kjúklinginn og bakið þar til kartöflurnar eru mjúkar í gegn og osturinn byrjaður að verða gullinn (u.þ.b. 15 mín í viðbót). Skreytið með fersku rósmarín.