Ofnbakaður kjúklingur í Korma, einfalt og þægilegt

Uppskrift
Hráefni
900 gr. Rose Poultry kjúklingabringur
1 msk Filippo Berio olía til steikingar
Salt og pipar
1 Krukka Korma sósa frá Patak´s
1 lítil dós kókos mjólk frá Blue Dragon
1 msk eða eftir smekk af Tabasco sriracha sósu
1 lítil dós af ananas bitum
1 dl kókosflögur
Rifin ostur
Meðlæti
2-3 pokar af Tilda hrísgrjónum
2 Patak´s Naans brauð
Leiðbeiningar
1
Hitið ofnin í 200 gráður.
2
Skerið kjúklingabringurnar niður í smáa bita.
3
Hitið pönnuna með Filippo berio steikingar olíu. Á miðlungs hita lokið kjúklingabringunum og kryddið með salt og pipar.
4
Hellið krukku af Korma sósu útá pönnuna ásamt kókosmjókinni og dass af Tabasco sósunni eftir smekk (má sleppa). Hellið þá ananas bitunum og kókosflögunum útí og hrærið vel saman.
5
Hellið svo öllu saman í eldfast mót og stráið rifnum osti yfir og setjið inní ofn á 200 gráður í 15 mín.
6
Á meðan sjóðið grjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
7
Setjið svo Naan brauðin inní ofin bara rétt í lokin í 2-3 mín. Gott að strá smá osti yfir þau líka.
Uppskrift frá Aðalheiði hjá heidiola.is
MatreiðslaKjúklingaréttirTegundAusturlenskt
Hráefni
900 gr. Rose Poultry kjúklingabringur
1 msk Filippo Berio olía til steikingar
Salt og pipar
1 Krukka Korma sósa frá Patak´s
1 lítil dós kókos mjólk frá Blue Dragon
1 msk eða eftir smekk af Tabasco sriracha sósu
1 lítil dós af ananas bitum
1 dl kókosflögur
Rifin ostur
Meðlæti
2-3 pokar af Tilda hrísgrjónum
2 Patak´s Naans brauð