Print Options:








Kjúklingur í kókosmjólk með hvítlauk og basil

Magn1 skammturTími í undirbúning10 minsTími í eldun25 minsTotal Time35 mins

Bragðgóður og hollur léttur kjúklingaréttur.

 1 kg kjúklingabringur, skornar í litla bita, Rose Poultry
 3-4 hvítlauksrif, söxuð
 1 rautt chili, saxað smátt (fræhreinsað ef þið viljið hafa réttinn mildan=barnvænan)
 2 msk rautt karrýmauk, t.d. Red curry paste frá Blue dragon
 2 dósir kókosmjólk, t.d. Coconut Milk frá Blue dragon
 1 msk fiskisósa, t.d. Fish sauce frá Blue dragon
 2 tsk hrásykur/púðursykur
 1 búnt fersk basilika, söxuð
1

Setjið olíu á pönnu og steikið kjúklinginn. Takið af pönnunni og geymið.

2

Steikið chilí, hvítlauk og karrýmauk saman á pönnu í um eina mínútu.

3

Bætið þá kókosmjólk, sykri og fiskisósu saman við og látið sjóða í 10-15 mínútur eða þar til sósan hefur þykknað. Setjið að lokum kjúklinginn út í og eldið áfram í um 4-5 mínútur.

4

Bætið að lokum basilíkunni saman við. Berið fram með hrísgrjónum og njótið vel