Kjúklingur í grænu karrý er réttur sem flestum þykir bragðgóður.

Uppskrift
Hráefni
1 msk kókosolía
6 msk grænt karrýmauk, Green Curry paste frá Blue Dragon
1 1/2 tsk ferskt engifer, fínrifið
1/2 tsk börkur af límónu, rifinn
3 hvítlauksrif, pressuð
1 laukur, helmingaður og skorinn í þunnar sneiðar
1 rauð paprika, skorinn í sneiðar
100 ml kjúklingasoð
1 grillaður kjúklingur frá Rose Poultry, rifinn niður
1 dós kókosmjólk, Coconut milk frá Blue Dragon
1 lúka fersk basillauf
1 msk safi úr límónu
hrísgrjón
Leiðbeiningar
1
Hitið olíu á pönnu.
2
Setjið karrýmauk, engifer og límónubörkinn út á pönnuna og hrærið reglulega í 1 mínútu.
3
Bætið lauki og hvítlauki saman við og hrærið í blöndunni þar til laukurinn er farinn að mýkjast. Setjið þá papriku saman við og blandið öllu vel saman.
4
Setjið kjúklingasoðið út í og látið malla í nokkrar mínútur.
5
Bætið þá kjúklingi og kókosmjólkinni saman við og hitið við meðalhita í um 3 mínútur en látið ekki sjóða.
6
Smakkið til með límónusafa og karrýmauki og setjið að lokum ferska basilíku saman við.
7
Berið fram með hrísgrjónum.
Ég ber þennan rétt fram með hrísgjónum, límónubátum, kasjúhnetum eða salthnetum, fersku kóríander og chilíflögum. NAMM! Uppskrift frá GRGS.
MatreiðslaKjúklingaréttirTegundAsískt
Hráefni
1 msk kókosolía
6 msk grænt karrýmauk, Green Curry paste frá Blue Dragon
1 1/2 tsk ferskt engifer, fínrifið
1/2 tsk börkur af límónu, rifinn
3 hvítlauksrif, pressuð
1 laukur, helmingaður og skorinn í þunnar sneiðar
1 rauð paprika, skorinn í sneiðar
100 ml kjúklingasoð
1 grillaður kjúklingur frá Rose Poultry, rifinn niður
1 dós kókosmjólk, Coconut milk frá Blue Dragon
1 lúka fersk basillauf
1 msk safi úr límónu
hrísgrjón