Print Options:








Kjúklingur í fetaostarjómasósu með sweet chili

Magn1 skammtur

Einfaldur kjúklingaréttur í eldföstumóti með sætri rjómasósu.

 700 g kjúklingalundir frá Rose Poultry
 2 dl sýrður rjómi
 0.5 dl rjómi
 100 g fetaostur
 3 msk Sweet chilí sósa frá Blue Dragon
 2 hvítlauksrif, pressuð
 1 tsk timían
 salt og pipar
 4 sneiðar beikon, eldað stökkt
1

Setjið kjúklinginn í ofnfast mót og dreipið olíu yfir hann. Saltið og piprið. Látið inní 210°c heitan ofn í 15 mínútur.

2

Setjið sýrðan rjóma, rjóma, fetaost, sweet chilí sósu, hvítlauk og timían í matvinnsluvél/blandara og blandið vel saman.

3

Takið kjúklinginn úr ofninum og hellið sósunni yfir hann.

4

Látið inní ofn í 15-20 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.

5

Takið úr ofni og stráið stökku beikonbitum yfir.

Nutrition Facts

Serving Size 3-4