Grilluð kjúklingaspjót með kaldri sósu.

Uppskrift
Hráefni
Kjúklingaspjót
1 poki Rose Poultry kjúklingabringur (um 900 g)
Um 150-200 ml Caj P grillolía – Honey
1 pakki sveppir
½ - 1 kúrbítur
1 rauð paprika
1 gul paprika
Sinnepsdressing
230 g Heinz majónes
60 g Heinz sætt sinnep
1 msk. hlynsýróp
½ tsk. salt
½ tsk. hvítlauksduft
¼ tsk. pipar
Leiðbeiningar
Kjúklingaspjót
1
Skerið bringurnar niður í hæfilega stóra bita (um 3 x 3 cm) og leyfið þeim að marinerast upp úr grillolíunni í að minnsta kosti klukkustund (yfir nótt er líka í lagi).
2
Skerið kúrbít og papriku niður, einnig sveppi í tvennt ef þeir eru mjög stórir.
3
Raðið öllu upp á grillprik, grænmeti til skiptis við kjúkling.
4
Grillið á vel heitu grilli í nokkrar mínútur á hvorri hlið eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Gott er að pensla grillolíu á spjótin (kjúkling og grænmeti) 1 – 2 x á meðan þau eru á grillinu.
Sinnepsdressing
5
Pískið saman þar til kekkjalaust og geymi í kæli fram að notkun.
Uppskrift frá Berglindi á Gotterí.
MatreiðslaGrillréttir, KjúklingaréttirTegundÍslenskt
Hráefni
Kjúklingaspjót
1 poki Rose Poultry kjúklingabringur (um 900 g)
Um 150-200 ml Caj P grillolía – Honey
1 pakki sveppir
½ - 1 kúrbítur
1 rauð paprika
1 gul paprika
Sinnepsdressing
230 g Heinz majónes
60 g Heinz sætt sinnep
1 msk. hlynsýróp
½ tsk. salt
½ tsk. hvítlauksduft
¼ tsk. pipar