Print Options:








Kjúklingasalat í tortillaskál með mangó, jarðaberjum og balsamik hunangsdressingu

Magn1 skammtur

Kjúklingasalat í tortillaskál.

 4 tortilla frá Mission
 2 kjúklingabringur,t.d. frá Rose Poultry
 grænt salat að eigin vali, td ½ poki spínat eða salatblanda.
 ½ box kirsuberjatómatar, skornir í helming
 ½ box jarðaber, skorin í helming
 1 mango, skorið í litla bita
 ½ rauðlaukur, skorinn þunnt
 ½ gúrka, skorin í bita
 2-3 gulrætur, rifnar
 Parmesan Parmareggio
Sósan
 3 msk balsamic ediki
 1 1/2 msk hunang
1

Hver pönnukaka er pensluð með olíu og krydduð með smá salti.

2

Pönnukakan er sett í eldfast mót sem er minna en sjálf pönnukakan.

3

Svo er hún bökuð í 11-13 mín við 160°C. Látið kólna á grind.

4

Kjúklingabringurnar eru kryddaður með kryddi að eigin vali, og bakaðar í ofni í 25 mínútur við 200°c. Kjúklingurinn er svo skorinn í strimla. Kjúklingurinn má vera kaldur eða volgur í salatinu.

5

Salatið er sett í tortilla salat skálina. Kjúklingurinn settur ofan á og svo er salatsósunni hellt yfir. Parmesan osturinn er raspaður yfir.