Namm namm sögðu matargestir er þeir gæddu sér á þessu bragðgóða kjúklingasalati.

Uppskrift
Hráefni
4 kjúklingabringur frá Rose Poultry
2 hvítlauksrif, pressuð
salatblöð, t.d. lambahagasalat
1 tsk paprikukrydd
1 msk sólblómafræ
ólífuolía frá Filippo Berio
40 ml sweet chilí sósa, frá Blue Dragon
brauðteningar
Sósa
2 msk majones
2 msk sýrður rjómi frá Oatly
1 tsk sítrónusafi
1 msk hunang
Salatlögur
1 tsk balsamik edik frá Filippo Berio
1 tsk soyasósa frá Blue Dragon
1 msk extra virgin ólífuolía frá Filippo Berio
Leiðbeiningar
1
Skerið kjúklingabringurnar í litla bita. Kryddið með salti og paprikukryddi.
2
Hrærið balsamik ediki, soyasósu og ólífuolíu vel saman og veltið salatblöðunum upp úr leginum.
3
Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklinginn. Bætið hvítlauknum saman við. Þegar kjúklingurinn er næstum fulleldaður bætið þið sweet chilísósu saman við ef hún er látin fyrr saman við á hún til að brenna.
4
Gerið sósuna með því að blanda hunangi, sítrónusafa, salti og pipar vel saman.
5
Setjið salatblöðin í skál, Látið kjúklinginn yfir salatið, ásamt fræjum og brauðteningum og setjið sósu yfir allt. Mér þykir gott að láta smá sósu yfir salatið og bera það svo fram í skál með matnum.
6
Munið að njóta!
Uppskrift frá GRGS.
MatreiðslaKjúklingaréttir, SalatTegundAsískt, Íslenskt
Hráefni
4 kjúklingabringur frá Rose Poultry
2 hvítlauksrif, pressuð
salatblöð, t.d. lambahagasalat
1 tsk paprikukrydd
1 msk sólblómafræ
ólífuolía frá Filippo Berio
40 ml sweet chilí sósa, frá Blue Dragon
brauðteningar
Sósa
2 msk majones
2 msk sýrður rjómi frá Oatly
1 tsk sítrónusafi
1 msk hunang
Salatlögur
1 tsk balsamik edik frá Filippo Berio
1 tsk soyasósa frá Blue Dragon
1 msk extra virgin ólífuolía frá Filippo Berio